Hægt er að nota AtlasFrelsi sama hjá hvaða íslenska símafyrirtæki þú ert hjá.
Atlasfrelsi fæst á sölustöðum út um allt land.

AtlasFrelsi fæst í 500kr. - 1.000 kr. - og 2.000 kr. kortum.
Leiðbeiningar
Atlasfrelsi er þægilegt og mjög einfalt í notkun. Hægt er að hringja úr og í hvaða síma sem er.
Flestar samtalsmínútur fást þegar hringt er í heimasímanúmer erlendis.
1. Sláið inn 5821000* eða 8001200**
2. Sláið inn 12 tölustafa pin númer sem er undir skafröndinni aftan á kortinu og ýtið svo á #.
3. Sláið inn 00, landsnúmer, svæðisnúmer og símanúmer. dæmi til Bandaríkjanna er:
00-1-847-1234567 og ýtið svo á #.
4. Símsvari gefur upplýsingar um innistæðu á kortinu og því næst færðu tengingu.
Náist ekki sambandi í fyrstu tilraun nægir að slá tvisvar á kassa # og svo símanúmerið.
Óþarft er að slá inn pin númerið aftur.
Í símtalið eyðist ákveðinn fjöldi mínútna af inneigninni.
Inneign geymist á pinnúmerinu.
* Ef hringt er í 582-1000 greiðir notandi kortsins mínútugjald á innanlandstaxta.
**800-1200 er gjaldfrjálst númer, en við notkun þess fást færri mínútur í taltíma. Hringing úr gjaldfrjálsu númeri er sniðin fyrir þá sem sem hringja úr símum þar sem greiða þarf sérstakar aukaþóknanir fyrir símtöl, svo sem á hótelum.
Ekki er gjaldfrítt að hringja úr GSM-síma í 800-1200.
Tal áskilur sér rétt til verðbreytingar án fyrirvara
Gildistími korts er 12 mánuðir frá fyrstu notkun