
|
|
ANDROID FORRIT
Ef þú varst að versla þér nýjan Android síma eða vilt kynna þér vinsælustu
forritin og leikina þá ertu á réttum stað.
Athugið að mörg þessara forrita og leikja eru einnig til fyrir iOS.
|
|
| |
|
| |
|
|
|
|
BARCODE SCANNER
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Skannaðu strikamerki á geisladiskum, bókum eða öðrum vörum og láttu Android símann þinn finna upplýsingar um vöruna á netinu. Þú getur fundið gagnrýni um vöruna, verð á helstu vefverslunum eða stakar greinar sem að fjalla um vöruna eða eitthvað henni tengt.
Þú getur líka notað forritið til að skanna svokallaða QR kóða.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Barcode Scanner.
|
 |
|
|
|
INSTAGRAM
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Myndavéla forrit sem gerir þér kleift að ná augnablikinu á mynd,
síðan getur þú sett skemmtilega litasíu á myndina og svo deilt henni
með öðrum notendum Instagram eða Facebook.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Instagram.

|
 |
|
|
|
SCANDINAVIAN KEYBOARD
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Lítið sem að hægt er að segja um þetta forrit annað en að þetta er íslenskt lyklaborð fyrir Android síma. Allir séríslenskir stafir fylgja lyklaborðinu og svo er hægt að sækja viðbót fyrir það sem er íslensk orðabók. Orðabókin leiðréttir þig þegar þú ert að slá inn setningar og flýtir fyrir þér með tillögum að orðum sem að þú ert að byrja að slá inn. Viðbótina má finna í Play Store og heitir Icelandic dictionary.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Scandinavian Keyboard. |

|

|
|
|
|
|
TEMPLE RUN
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Gríðarlega vinsæll leikur sem snýst um að stjórna manni sem stal forngrip úr musteri.
Maðurinn þarf að komast yfir allskonar hindranir og safna gullpeningum á hlaupunum undan reiðum öpum.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Temple Run. |
 |

|
|
|
|
|
3G WATCH DOG
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Þetta forrit heldur utan um gagnamagnið sem að þú ert að nota í gegnum 3G á farsímanum þínum. Þú getur gefið þér ákveðin skilyrði fyrir því hversu mikið gagnamagn þú leyfir þér á dag, viku eða mánuði. Forritið gefur þér áætlun um hversu mikið gagnamagn þú munt verða búinn með í lok tímabils út frá meðalnotkun þinni dag frá degi.
Það besta við 3G Watchdog er að forritið sýnir þér myndrænt hvað það er sem að eykur niðurhal þitt í gegnum 3G. Að horfa á nokkur Youtube myndskeið, streyma tónlist af netinu og að sækja forrit frá Android Play Store í gegnum 3G getur aukið niðurhal þitt mjög hratt. En með 3G Watchdog áttu auðveldara með að sjá hvernig notkun þín hefur áhrif á niðurhal og því áttu auðveldara með að breyta notkunnarmynstrinu og lækkað kostnaðinn. Forritið lætur þig einnig vita þegar að þú ert að verða búinn með gagnamagnið sem þú settir þér fyrir ákveðið tímabil.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér 3G Watchdog. |
 |

|
|
|
|
|
SOCCER SCORES
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Fylgistu fótbolta? Með þessu forriti geturðu fylgst með stöðunni í öllum knattspyrnudeildum heims. Forritið birtir þér stöðu deilda, leikja og efstu markaskorara auk þess sem að þú getur fylgst með leikjum sem eru í gangi hverju sinni. Þú getur skoðað fréttir úr deildunum sem þú fylgist með, séð yfirlit yfir næstu leiki í deildunum og fleira. Veldu þitt lið og forritið lætur þig vita af öllu sem tengist því.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Soccer Scores. |
 |

|
|
|
|
|
YOUR GOLF
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Fyrir alla golfara. Með þessu forriti geturðu sótt yfirlit af 28.000 golfvöllum í heiminum og sá grunnur fer ört stækkandi. Skráðu höggin þín, hvaða kylfu þú notar og hvar boltinn lendir. Forritið tengist GPS tækninni í Android símanum og gefur þér yfirlitsmynd af brautinni, fjarlægð frá flötinni og heldur sögu yfir hvernig þú leystir síðast úr hlutunum. Með GPS tækninni geturðu beðið forritið að finna fyrir þig golfvöll í næsta nágrenni við staðsetningu þína. Þú getur svo reiknað út forgjöfina þína eftir hringinn, deilt honum með vinum þínum og vistað hann á símann.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Your Golf. |
 |

|
|
|
|
|
ENDOMONDO
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Stundarðu hlaup, göngu, skíði eða aðrar íþróttir þar sem þú ferðast ákveðna vegalengd? Endomondo gerir upplifun þína enn meira spennandi. Á www.endomondo.com geturðu skráð og fylgst með öllum þínum íþróttaiðkunum. Þar geturðu fundið fólk sem að hefur sömu áhugamál, fengið innblástur frá þeim og fylgst með þeirra íþróttaiðkunum, jafnvel á meðan að á þeim stendur. Hvort sem að þú vilt fylgjast með og skrásetja eigin árangur hverju sinni eða staðsetja þig meðal stærri hópa þá er Endomondo nýi íþróttafélagi þinn.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Endomondo. |
 |

|
|
|
|
|
GOOGLE SKY MAP
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Þetta forrit lætur drauma stjörnuáhugamannsins rætast. Forritið notar gögn frá Google Sky og GPS tækninni í Android símanum þínum, forritið umbreytir skjánum á símanum í glugga inn til himnanna. Ef þú beinir símanum til himins og færir hann til færðu rauntíma upplýsingar um stjörnur, plánetur og stjörnumerki sem símanum er beint í áttina að. Þú getur líka rennt fingrinum yfir skjáinn og skoðað þannig himingeiminn að vild.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Google Sky Map. |
 |

|
|
|
|
|
KNÖTTUR
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Knöttur er snjallsímaforrit sem gerir knattspyrnuáhugamönnum kleift að fylgjast með öllu því sem skiptir máli í íslenskri knattspyrnu í símanum sínum. Í forritinu má finna allt um úrvalsdeild karla og kvenna, allt um 1. og 2. deild karla ásamt öllum úrslitum.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Knött. |
 |

|
|
|
|
|
GOOGLE TRANSLATE
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Notaðu Google í Android símanum þínum með þessu forriti til að þýða texta á yfir 50 tungumál. Þú getur slegið inn texta eða lesið inn texta og fengið hann þýddan á því tungumáli sem að þig vantar að þýða yfir á hverju sinni. Snilldar forrit til að grípa í erlendis og slá um sig með fleigum setningum á tungumáli heimamanna. Athugið að gagnatengingar erlendis geta verið kostnaðarsamar.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Google Translate. |
 |

|
|
|
|
|
VEÐRIÐ
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Veðrið birtir upplýsingar um íslenskt veður á því formi sem flestir þekkja, veðurskiltum Vegagerðarinnar. Þar að auki bíður græjan upp á greiðan aðgang að nánari upplýsingum um vind, vindhviður, hita, veghita og daggarmark ásamt upplýsingum um umferð.
Upplýsingar eru sóttar úr 234 veðurstöðvum og gögnum frá 12 aðilum.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Veðrið. |
 |

|
|
|
|
|
EVERNOTE
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Ef þú sérð eitthvað, heyrir eitthvað eða dettur eitthvað í hug þá getur Evernote hjálpað þér að muna það. Taktu upp hljóðskrá, taktu mynd, skrifaðu hjá þér punkta eða taktu afrit af tölvuskjánum hjá þér. Evernote geymir allar þínar hugmyndir, hugsanir og punkta sem að annars færu á gulan miða og gætu týnst. Allt sem þú vistar er flokkað og gert aðgengilegt fyrir þig svo það sé auðvelt að finna aftur.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Evernote. |
 |

|
|
|
|
|
DROPBOX
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Með Dropbox getur þú nálgast gögn úr tölvunni í farsímanum.
Setja þarf upp Dropbox fyrst í PC eða Mac tölvu (dropbox.com),
svo þarf að færa skjölin yfir í Dropbox möppuna og fljótlega verða þau skjöl svo sýnileg í Dropbox forritinu í símanum þínum.
Með þessu er einnig komið öryggisafrit af skjölunum og þau geymd í „skýi“.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Dropbox. |
 |

|
|
|
|
|
JEWELS
MEÐ 3G ANDROID TÆKINU ÞÍNU FRÁ TALI
Einfaldur en mjög vel gerður leikur þar sem að þú raðar saman þremur samstæðum gimsteinum, klassík. Varúð leikurinn er mjög ávanabindandi og þú getur keppt við stigamet spilara allstaðar að úr heiminum.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Jewels. |
 |

|
|
|
|
|
TALKING TOM CAT 2
MEÐ 3G ANDROID FARSÍMA FRÁ TALI
Köttur sem talar? Talking Tom endurtekur allt sem þú segir með skrækri röddu. Þú getur klappað honum, potað í hann, kýlt hann, gefið honum mjólk að drekka, þú getur meira að segja tosað í skottið á honum. Skemmtu þér með Talking Tom sem að slær í gegn í öllum partýum. Börn á öllum aldri elska Talking Tom. Svo geturðu líka tekið upp það sem þú lætur Tom endurtaka og sett inn á Facebook og Youtube.
Farðu í Play Store á Android tækinu þínu frá Tali og sæktu þér Talking Tom Cat. |
 |
|
|